Morgunfundur Elvo
Þjónusta á tímum gervigreindar
Samtal stjórnenda um tækni og þjónustu
Flest fyrirtæki finna fyrir vaxandi kröfum í þjónustu: Skilaboðum fjölgar, svör þurfa að berast hratt og samt sem áður á þjónustan að vera persónuleg og áreiðanleg. Mikið er talað um gervigreind, en hvað virkar í raun? Á morgunfundi Elvo fáum við til okkar stjórnendur frá Dalberg, Samskipum og Almannarómi sem deila því hvernig þeir nýta tækni og skýra ferla til að létta álagi af starfsfólki og tryggja betri upplifun viðskiptavina.

Frá fyrirspurn í afgreitt mál - með tækni og skýrum ferlum
Arnaldur Gauti Johnson
Framkvæmdastjóri hjá Dalberg

Ertu að nota réttu tækin?
Óttar Kolbeinsson Proppé
Yfirmaður stefnu, samhæfingar og alþjóðamála hjá Almannarómi

Hvernig má nýta gervigreind til að bæta þjónustuupplifun og einfalda verkferla?
Helga María Garðarsdóttir
Forstöðumaður þjónustudeildar hjá Samskipum
Fundarstjóri: Stefán Hirst Friðriksson, framkvæmdastjóri Elvo. Morgunverður í boði fyrir gesti. Takmarkaður fjöldi sæta. Skráningar fara á biðlista þegar hámarksfjölda er náð.