Þjónustuverið sem
svarar sjálft.
Elvo-þjónninn er þjónustufulltrúi knúinn gervigreind sem svarar á vefnum, í tölvupósti, á samfélagsmiðlum og í síma. Fólkið þitt tekur við með fullu samhengi þegar á þarf að halda.
Einföld erindi leysast sjálf. Flóknari fara í svardrög sem þú samþykkir. Þú hefur alltaf fulla stjórn.
erindi leyst í Elvo
erinda leysast án aðkomu starfsmanns
þjónninn svarar allan sólarhringinn
Íslensk þjónustuteymi treysta Elvo
Frá netverslunum til stórfyrirtækja: teymi sem lögðu þjónustuna í hendur Elvo og sáu árangur.
Einn þjónn. Allar samskiptaleiðir.
Sami þjónninn, sama þekkingin, hvar sem viðskiptavinurinn nær í þig. Virkjaðu það sem þú þarft, þegar þú þarft þess.
Spjall
Spjallþjónn
Svarar gestum á vefsíðunni þinni samstundis út frá þínu eigin efni og sendir flókin mál á teymið.
Skilaboð
Svarþjónn
Les öll skilaboð í tölvupósti, á samfélagsmiðlum og í vefformum, flokkar þau og skrifar svardrög sem þú samþykkir.
Símsvörun
Raddþjónn
Svarar símtölum á íslensku, leysir einföld erindi, gefur samband við manneskju á opnunartíma og tekur annars skilaboð.
Allt fyrir framúrskarandi þjónustu
Eitt innhólf fyrir allt
Öll erindi á einum stað: tölvupóstur, vefspjall, form, samfélagsmiðlar og fleira. Aldrei missa af skilaboðum aftur.
Gervigreind sem vinnur með þér
Gervigreindin flokkar, skrifar uppköst, beinir og leggur til, en hvert svar fer í gegnum þig áður en það er sent.
Samvinna í rauntíma
Sjáðu hver er að vinna í hverju, samstarfið í málum og komist hjá tvíverknaði með rauntíma viðveru.
Þekking þjónsins
Þjálfaðu þjóninn á þínum skjölum, vefsíðum og fyrri samskiptum. Hann lærir um fyrirtækið þitt og skrifar nákvæm svör samstundis.
Sjálfvirkar reglur
Beindu, merktu, forgangsraðaðu og svaraðu sjálfvirkt út frá sérsniðnum skilyrðum. Settu upp einu sinni, láttu kerfið sjá um restina.
Eitt innhólf
Þar sem gervigreind og fólk vinna saman.
Allar rásir renna í eitt innhólf: tölvupóstur, vefspjall, samfélagsmiðlar, sími, vefform og þín eigin kerfi. Þar leysir þjónninn það sem hann getur, vinnur með teyminu þínu og réttir manneskju málið þegar á þarf að halda.
Þjónninn leysir sjálfur
Einföld og endurtekin erindi leysast sjálfkrafa, allan sólarhringinn, án þess að nokkur þurfi að lyfta fingri.
Þið vinnið saman
Þjónninn flokkar, dregur saman og skrifar svardrög. Teymið þitt sér allt í rauntíma, breytir og samþykkir, í sama innhólfi.
Manneskja tekur við
Þegar erindi þarf mannlega snertingu stígur þjónninn til hliðar og sendir það áfram með öllum þræðinum, svo enginn byrjar upp á nýtt.
Tengist kerfunum sem þú notar nú þegar
Tengingarnar auðga bæði þekkingu þjónsins og þjónustuverið. Viðskiptavinir parast sjálfkrafa við gögnin sín, svo þjónninn og teymið þitt fá fullt samhengi án þess að fletta upp neinu.
Abler
Meðlimir, forráðamenn og námskeiðsskráningar úr Abler parast sjálfkrafa við hvert samtal.
Bókun
Ferða- og afþreyingarbókanir viðskiptavinarins úr Bókun birtast við hlið samtalsins og gervigreindin flettir bókuninni upp þegar viðskiptavinur gefur upp staðfestingarnúmer.
Business Central
Reikningar, staða og viðskiptasaga úr Business Central fylgja viðskiptavininum inn í hvert samtal.

Caren
Bókanir viðskiptavinarins úr Caren bókunarkerfinu — dagsetningar, bíll og staða — birtast sjálfkrafa við hlið samtalsins.
Confluence
Síður úr Confluence-svæðunum sem þú velur verða að þekkingu fyrir þjóninn og haldast uppfærðar sjálfkrafa.
DK bókhald
Reikningar og staða viðskiptavinarins úr DK bókhaldi birtast sjálfkrafa með samtalinu.
Dropp
Sendingar og afhendingarstaða parast við viðskiptavininn, svo „hvar er pakkinn minn?“ svarar sér sjálft.
HubSpot
Tengiliðir, fyrirtæki og samningar úr HubSpot auðga hvert samtal sjálfkrafa.

Já
Skráning símanúmers viðskiptavinarins á Já.is birtist með samtalinu og hægt er að fylla inn nöfn tengiliða sem skildu bara eftir símanúmer.

LS Retail
Viðskiptamannaskrá, opnar pantanir og reikningar úr LS Retail fylgja viðskiptavininum inn í hvert samtal.
Noona
Tímabókanir viðskiptavinarins úr Noona — þjónusta, starfsmaður, tími og staða — birtast við hlið samtalsins, svo gervigreindin svarar „hvenær á ég tíma?“ sjálf.
Notion
Notion-síðurnar sem þú deilir með Elvo verða að þekkingu fyrir þjóninn og haldast uppfærðar sjálfkrafa.

Payday
Reikningar og greiðslustaða úr Payday parast sjálfkrafa við viðskiptavininn í hverju samtali.
Pósturinn
Þegar viðskiptavinur nefnir sendingarnúmer frá Póstinum sér gervigreindin nýjustu stöðu sendingarinnar um leið og hún skrifar svarið.
Salesforce
Tengiliðir, fyrirtæki og tækifæri úr Salesforce fylgja hverju samtali sjálfkrafa.
SharePoint
Word-, PDF- og önnur skjöl af SharePoint-vefsvæðinu verða að þekkingu fyrir þjóninn og haldast uppfærð sjálfkrafa.
Shopify
Pantanir, sendingarstaða og rakningarnúmer fylgja viðskiptavininum og teymið getur fellt niður eða endurgreitt pöntun beint úr málinu.
Slack
Ný mál og uppfærslur birtast á Slack-rás, með hnappi sem opnar málið beint í Elvo.
Microsoft Teams
Ný mál og uppfærslur birtast á rás í Microsoft Teams, með hnappi sem opnar málið beint í Elvo.
WooCommerce
Pantanir og viðskiptasaga úr WooCommerce versluninni þinni parast sjálfkrafa við hvert samtal.
Zapier
Tengdu Elvo við þúsundir annarra forrita: ræstu Zaps við ný mál og skilaboð, og bættu við athugasemdum eða uppfærðu mál úr öðrum kerfum.
Mælt, ekki giskað
Sjáðu svart á hvítu hvað þjónninn leysir.
Fjöldi erinda, svartímar, hlutfall sjálfleystra mála og samanburður við sambærileg teymi. Þú sérð nákvæmlega hvað þjónninn tekur af teyminu og hvar á að bæta í.
Öryggi og persónuvernd í fyrirrúmi
Sjá gagnaöryggiVaran sjálf
Þetta er Elvo.
Sama þjónustuborðið í tölvunni og í vasanum. Svardrög, samhengi og öll samskipti á einum stað, hvar sem þú ert.


Algengar spurningar
Hvaða rásir styður Elvo?
Elvo styður tölvupóst, Gmail, Office 365, Facebook Messenger, Instagram, WhatsApp, spjallglugga á vefsíðu, símtöl, tengiliðaform og sérsniðnar rásir í gegnum API. Öll samskipti lenda í einu sameiginlegu innhólfi.
Virkar Elvo með Gmail og Google Calendar?
Já. Þegar þú tengir Gmail eða Google Workspace pósthólfið þitt getur teymið lesið og svarað tölvupósti viðskiptavina beint í Elvo, og svörin sendast frá þínu eigin netfangi. Með því að tengja Google Calendar geturðu séð fundina þína við hliðina á samtölunum, bókað fundi með Google Meet hlekk og svarað fundarboðum beint úr tölvupóstinum. Elvo stingur einnig upp á viðtakendum úr Google tengiliðunum þínum og Google Workspace skrá fyrirtækisins. Elvo notar Google gögn eingöngu fyrir þessa eiginleika, eins og lýst er í persónuverndarstefnu okkar.
Hvernig virkar gervigreindin?
Elvo-þjónninn les skilaboð, flokkar og forgangsraðar þeim, sækir samhengi úr Þekkingu og fyrri samskiptum og skrifar svardrög í rödd vörumerkisins. Hann lærir af skjölum, vefsíðum og sögulegum gögnum og getur flett upp lifandi gögnum eins og pöntunum og reikningum þegar tengingar eru til staðar.
Get ég stjórnað því sem gervigreindin sendir?
Algjörlega. Hvert uppkast frá gervigreindinni þarfnast mannlegrar samþykktar áður en það berst viðskiptavininum. Þú getur breytt, hafnað eða samþykkt hvert svar. Öryggismörk og verklagsreglur veita þér enn frekari stjórn.
Er hægt að prófa frítt?
Já, boðið er upp á 14 daga fría prufu með fullum aðgangi að Vöxtur (Pro). Ekkert kreditkort þarf til. Prufutímabilið breytist aldrei sjálfkrafa í gjaldskylda áskrift. Áskriftir eru settar upp í samstarfi við söluteymi Elvo.
Hvar eru gögnin mín geymd?
Öll gögn eru geymd innan Evrópusambandsins og öll gervigreindarvinnsla fer líka fram innan Evrópu. Elvo er í fullu samræmi við GDPR með vinnslusamningum, dulkóðun og fullum rekjanleika.
Get ég flutt gögn úr öðru þjónustuborði?
Já. Við aðstoðum við flutning frá öðrum þjónustukerfum. Innleiðingarteymið okkar hjálpar þér að flytja gögn og komast í gang hratt.
Bjóðið þið upp á afslátt fyrir stærri teymi?
Já, hafðu samband við okkur fyrir sérsniðið tilboð. Við bjóðum magnverðlagningu og getum sérsniðið áætlun að þörfum teymisins, þ.m.t. þjónustusamning og innleiðingarstuðning.
Sjáðu Elvo í verki
Bókaðu kynningu og við förum í gegnum þjónustuverið þitt, eða prófaðu Elvo sjálf(ur).




